लोड हो रहा है

Slzii.com खोज

खोज (समाचार)

Eva Joly vill sérstaka eftirlitsnefnd með auð- og valdastéttinni
Norsk-franski rannsóknardómarinn Eva Joly leggur til að sérstök, óháð þingnefnd verði sett á laggirnar í Noregi til að hafa auga með athæfi auð- og valdastéttarinnar. Mjög líklegt sé að fólk úr hennar röðum hafi framið alvarlega glæpi vegna skorts á eftirliti. Tilsjón sé orðin nauðsyn í ljósi þess hve áberandi Norðmenn eru í Epstein-skjölunum, sem birt voru fyrir rúmri viku, þeirra á meðal krónprinsessan Mette-Marit og Thorbjørn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra. Efnahagsbrotadeild lögreglunnar hefur hans mál til rannsóknar. „Það er ekki nóg að hver og einn gæti að sér,“ segir Joly í samtali við NRK. Hún segir meðal annars þurfa að bera saman hversu auðugt fólk er þegar það tekur að sér stjórnunarstarf og þegar það lætur af því. „Ef þú getur ekki útskýrt aukið ríkidæmi er það glæpur,“ segir Joly og bætir við að Norðmenn treysti elítunni um of og hafi litla stjórn á hegðun hennar. Hún segir að ríkisendurskoðandi og utanríkisráðuneytið hafi oft gert athugasemdir um hegðun fólks í valdastöðum án þess að til rannsóknar kæmi. „Blaðamenn hafi fjallað um málin, en var hlustað?,“ spyr Eva Joly. „Það er ekki auðvelt að vera uppljóstrari við svona aðstæður.“ Joly áréttar jafnframt að eftirlitsnefnd hafi ekki sömu valdheimildir og lögregla sem hafi með sér alþjóðlega samvinnu og geti krafið grunað fólk svara. Eva Joly starfaði með sérstökum saksóknara á Íslandi í hálft annað ár eftir bankahrunið og rannsakaði Elf-málið í Frakklandi, sem leiddi til sakfellingar þrjátíu manna.
2026-02-07 22:57:15

आप क्या कर रहे हो?

0.043201923370361


समाचार
समाचार

नवीनतम समाचार और सुर्खियाँ
Norsk-franski rannsóknardómarinn Eva Joly leggur til að sérstök, óháð þingnefnd verði sett á laggirnar í Noregi til að hafa auga með...
समाचार