Chargement

Slzii.com Recherche

Recherche (Nouvelles)

Niðurstaða kosninga að mestu ljós fyrirfram og spennan lítil
Í Moskvu hefur fátt bent til þess að þingkosningar hafi verið haldnar um helgina. Engir kosningafundir, engar myndir af frambjóðendum, aðeins eitt og eitt veggspjald til að minna á kosningahelgina enda margir lítt meðvitaðir um að það séu þingkosningar í gangi. Eftir að eina flokknum sem lýsti andstöðu við stríðið var bannað að bjóða sig fram er fátt sem bendir til annars en að Sameinað Rússland, flokkur Pútíns forseta, haldi góðum meirihluta á Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins. Andstæðingar forsetans segja kosningarnar sýndarleik. Stjórnin hvetji kjósendur til að kjósa rafrænt sem auðveldara sé að hagræða en kjörseðlunum sem koma upp úr kössunum. Fyrir utan kjörstað sem Jón Björgvinsson fréttamaður RÚV fór á um helgina voru það aðeins fylgjendur Pútíns sem ekki óttuðust að tjá sig. Fyrrum rússneskur hermaður segir lítið gagn af þingmönnum landsins. Hann óttast stigmögnun átaka í stríðinu við Úkraínu. Jón Björgvinsson, fréttamaður RÚV, ræddi við hann á dögunum. „Við stöndum með Pútín, forseta okkar. Við svíkjum hann ekki á sama hátt og Vesturlöndin gera,“ sagði einn kjósenda. Þátttaka í rússneskum þingkosningum fer sjaldan yfir 60 prósent og Edward er einn af þeim sem telja það þjóna litlum tilgangi að kjósa. Þessi 48 ára gamli hermaður fór í stríðið í Úkraínu í þeirri trú að hann ætti að berjast þar við nasista en kom bæði særður og vonsvikinn til baka. „Það er sama þótt núverandi þingmenn verði endurkjörnir eða nýir komi í þeirra stað. Þeir hafa aldrei gert neitt til að gera líf okkar bærilegra. Miðað við það sem ég heyri óttast ég að við séum á barmi mikilla átaka. Stríðið mun aðeins magnast. Þeir sem styðja þessi átök ættu að fara og reyna það sjálfir hvernig það er að vera á vígvellinum. Þetta ástand hefur bara steypt okkur í skuldir og hvaðeina,“ segir Edward. Stjórnvöld í Moskvu reyndu allt til að sýna fram á góða kosningaþátttöku nú um helgina, jafnvel með peningagjöf til þeirra sem kjósa, meðvituð um þetta almenna áhugaleysi þegnanna hér sem töldu niðurstöðu þessara rússnesku þingkosninga fyrir fram gefna.
2026-09-20 20:36:45

Ebóla greinist á nýjum svæðum
Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur dreifst á ný svæði í landinu, samkvæmt Læknum á landamæra. Faraldurinn er þegar sá versti í landinu til þessa, yfir 3600 hafa látist og 7200 hafa smitast, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Faraldurinn hefur nánast eingöngu geisað á afskekktum svæðum í norðausturhluta landsins. Manuel Albela Miranda, faraldursfræðingur hjá Læknum án landamæra, sagði í viðtali við AFP-fréttaveituna í dag að of snemmt væri að segja til um hvort faraldurinn væri í rénun. „Þó að við viljum vera jákvæð og hvetjandi gagnvart stöðunni verðum við líka að horfast í augu við það sem er að gerast. Raunveruleikinn er sá að það er of snemmt að segja til um að hægt hafi á útbreiðslu faraldursins.“ Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sagði á miðvikudag að jákvæð merki væru um að hægt hefði á faraldrinum, en æðsta heilbrigðisstofnun Afríku dró það í efa í gær. Hún sagði ekki hægt að halda því fram að búið væri að ná tökum á faraldrinum. Læknar án landamæra taka undir það og segja ástandið þvert á móti ógnvænlegt. Guyguy Manangama, aðstoðarrekstrarstjóri samtakanna, segir vísbendingar um ástandið ekki uppörvandi. „Þvert á móti er ástandið ógnvænlegt.“ Hann óttast að fólk sé farið að slaka of mikið á. Þó að faraldurinn sé í rénun á svæðunum þar sem hann greindist fyrst, í Ituri-héraði í norðausturhluta landsins, hefur hann orðið skæðari í öðrum héruðum. Miranda segir tilfelli koma upp á mismunandi svæðum. „Þess vegna höfum við áhyggjur af stöðu faraldursins núna.“
2026-09-18 17:09:32

Que fais-tu?

0.013529062271118


Nouvelles
Nouvelles

Dernières nouvelles et titres
Nouvelles
Nouvelles