Loading

Slzii.com Search

Search (News)

Vestanganga getur mögulega skilað enn meiri loðnukvóta
Ekki er útilokað að enn meiri loðnukvóti verði gefinn út því í næstu viku sendir Hafrannsóknastofnun rannsóknarskipið Árna Friðriksson til að kanna útbreiðslu loðnu norðvestan við land.Loðnan gengur yfirleitt austur fyrir land en dæmi eru um að hluti stofnsins fari vestur fyrir eða rangsælis um landið til að hrygna úti fyrir Breiðafirði og Faxaflóa. Vísbendingar um mögulega vestangöngu fundust í janúar og dæmi eru um að aukamæling í febrúar skili auknum kvóta.Einhverjar líkur en ekki miklarGuðmundur Óskarsson, sem stýrir uppsjávarsviði Hafró, segir að tilgangurinn sé þó fyrst og fremst að kanna útbreiðsluna. Meira gæti fundist en líkurnar séu ekki miklar miðað við útbreiðslu og magn sem fannst í janúar.Ráðgert er að Árni Friðriksson haldi af stað 10. febrúar og leiðangurinn taki 12 daga.Ekki er langt síðan loðnukvóti var aukinn í um 197 þúsund tonn og er því góð vertíð framundan eftir nær algjöran loðnubrest tvo vetur í röð.
2026-02-06 12:36:27

What are you doing?

0.043651103973389


News
News

Latest News and Headlines
Ekki er útilokað að enn meiri loðnukvóti verði gefinn út því í næstu viku sendir Hafrannsóknastofnun rannsóknarskipið Árna Friðrikss...
News