Llwytho

Slzii.com Chwiliwch

Chwiliwch (Newyddion)

Zelensky segir 55 þúsund hermenn liggja í valnum frá upphafi
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir um 55 þúsund úkraínska hermenn liggja í valnum frá upphafi innrásarstríðs Rússa. Hann greindi frá þessu í einkaviðtali á frönsku sjónvarpsstöðinni France2. „Opinber fjöldi fallinna hermanna er 55 þúsund,“ sagði Zelensky og bætti við að fjölda Úkraínumanna væri saknað. Forsetinn komst við þegar hann talaði um mannfallið, sem sjaldan er gert opinbert. Óháðar hugveitur og greiningarstöðvar telja mun fleiri úkraínska hermenn hafa týnt lífi í bardögum við Rússlandsher. Þríhliða viðræður um endalok stríðsins standa yfir í Abu Dhabi á sama tíma og Rússar herða árásir á orkuinnviði Úkraínu. Volodymyr Zelensky segir Rússa vilja valda Úkraínumönnum þvílíkum þjáningum að þeir fallist á málamiðlunartillögur Bandaríkjamanna, sem séu í raun úrslitakostir frá Kreml. Forsetinn sagði að lúti Úkraína í lægra haldi tapist sjálfstæði landsins hreinlega. Leiðtogar í nágrannaríkjunum vissu líka að þá yrðu þau næstu fórnarlömb Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Þeir leiðtogar í öðrum Evrópulöndum sem skildu það hefðu stutt Úkraínu af alefli. „Við berjumst öll til að verja evrópska lifnaðarhættii,“ sagði Úkraínuforseti, sem stefnir að Evrópusambandsaðild á næsta ári. Zelensky sagði jafnframt að Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefði boðist til að reyna að miðla málum, sem væri gott. Hann sagði jafnframt Vladimír Pútín sjá sér hag í að niðurlægja Evrópu, hann óttist ekki evrópska leiðtoga en standi hins vegar stuggur af Donald Trump Bandaríkjaforseta.
2026-02-05 01:13:16

Beth ydych chi'n ei wneud?

0.040509939193726


Newyddion
Newyddion

Newyddion Diweddaraf a Phenawdau
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir um 55 þúsund úkraínska hermenn liggja í valnum frá upphafi innrásarstríðs Rússa. Hann grei...
Newyddion