Lueden

Slzii.com Sichen

Sichen (Neiegkeeten)

ÓL dagur 14: Hættar saman en mætast í úrslitaleik og keppt í skímó
Það er nóg um að vera á Vetrarólympíuleikunum í dag. Athyglisverð staða er komin upp fyrir úrslitaleik íshokkí kvenna. Þær Daryl Watts frá Kanada og Caroline Harvey frá Bandaríkjunum voru í sambandi en eru hættar saman. Óvíst er hvenær nákvæmlega það gerðist en liðsfélagi Harvey, Laila Edwards, staðfesti að Harvey væri ekki í sambandi þegar þær stöllur voru með beint streymi á samfélagsmiðlinum TikTok.Síðan þá hefur Harvey eytt öllum myndum af Watts á samfélagsmiðlum sínum. Harvey er einn besti varnarmaður Bandaríkjanna en er einnig stigahæst í liðinu. Watts er í sóknarlínu Kanada. Bandaríkin unnu Kanada 5-0 fyrr á mótinu en í leikinn vantaði Marie-Philip Poulin, besta leikmann Kanada.Leikurinn er klukkan 18:00 á RÚV.is.Liðin tvö hafa einokað Ólympíuleikana frá því að keppt var í kvennaíshokkí í fyrsta sinn árið 1998. Kanada er ríkjandi Ólympíumeistarar og hafa unnið fimm af síðustu sjö leikum. Í hin tvö skiptin, 1998 og 2018, urðu Bandaríkjakonur Ólympíumeistarar.Fjölbreytt dagskráÞetta er þó langt því frá það eina sem sýnt verður í dag. Keppt verður í skíðafimi og þá verður keppt í skímó í fyrsta sinn (e. skimo - ski mountaneering). Greinin heitir skimo á ensku og er í raun sprettganga á fjallaskíðum.Hvernig virkar skímó?Sprettkeppnin er þriggja mínútna löng hjá körlum og fjögurra mínútna löng hjá konum. Þar fara keppendur í gönguskíðahluta upp í móti, fara svo í fjallgönguhluta keppninnar þar sem þeir taka af sér skíðin og klífa brekkuna eins hratt og þeir geta. Loks skíða þau niður í móti fram hjá hliðum. Keppendur geta alls farið um 76 metra upp á við í einni keppni á einungis 180 til 240 sekúndum.Þá eru frjálsar æfingar í listskautum kvenna og 1500 metra skautahlaup karla einnig á dagskrá.Ólympíukvöld verður svo að sjálfsögðu á sínum stað klukkan 21:05. Þar verður farið yfir alla helstu atburði dagsins.
2026-02-19 06:30:44

Wat méchs du?

0.044306039810181


Neiegkeeten
Neiegkeeten

Lescht Neiegkeeten an Iwwerschrëften
Það er nóg um að vera á Vetrarólympíuleikunum í dag. Athyglisverð staða er komin upp fyrir úrslitaleik íshokkí kvenna. Þær Daryl Wat...
Neiegkeeten