ဒိန်း

Slzii.com ရှာရန်

ရှာရန် (သတင်း)

Jorge Messi er látinn 68 ára að aldri

Rúv.is icelandic top sports

Jorge Messi er látinn 68 ára að aldri. Hann var faðir og umboðsmaður argentínska knattspyrnumannsins Lionels Messi. Argentínskir miðlar segja Messi eldri hafa andast á föstudaginn á sjúkrahúsi í borginni Rosario þar sem sonur hans fæddist og ólst upp. Hann kom til Argentínu í gær ásamt unnustu sinni Antonellu Rocuzzo og börnum. Jorge Messi starfaði í stálverksmiðju þegar hann gerðist fyrsti þjálfari sonar síns og flutti einn með honum til Barcelona árið 2000. Lionel Messi, sem þá var þrettán ára, hefur sagt fyrstu misserin þar hafa verið erfið fyrir feðgana báða þótt þeir létu sem ekkert væri. Að lokum náði Jorge samkomulagi við Barcelona fyrir hönd Lionels og var eftir það umboðsmaður og helsti málsvari fótboltamannsins. Jorge talaði lítið um sjálfan sig og veitti sjaldan viðtöl. Þegar það gerðist ræddi hann nær eingöngu um sterkt samband þeirra feðga. Árið 2013 sagði hann í viðtali við þýska tímaritið Kicker að hann myndi sennilega hætta að horfa á fótbolta legði Lionel skóna á hilluna.
2026-08-09 03:15:02

သင်ဘာလုပ်နေပါလဲ?

0.024919033050537


သတင်း
Rúv.is

နောက်ဆုံးရသတင်းများနှင့် ခေါင်းစီးသတင်းများ
Jorge Messi er látinn 68 ára að aldri. Hann var faðir og umboðsmaður argentínska knattspyrnumannsins Lionels Messi. Argentínskir miðlar ...
သတင်း