بار کول

Slzii.com لټون

لټون (خبرونه)

Tæknibilun hefur áhrif á flug í Bretlandi og á Írlandi

Rúv.is icelandic world

Flugsamgöngur á Bretlandi og Írlandi hafa farið verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS. Mestar voru truflanirnar á Heathrow-flugvelli í Lundúnum. Brottfarir voru stöðvaðar um hádegisbil og vélum sem voru á leið þangað var beint á aðra flugvelli. Það urðu einnig truflanir á Gatwick í Lundúnum og á flugvöllunum í Manchester, Newcastle og Edinborg. Þá voru líka truflanir á báðum flugvöllunum í Belfast og í Derry, sem og í Dublin og Cork á Írlandi. Minnst 625 flugferðum til og frá Bretlandi hefur varið aflýst samkvæmt vef Guardian. EasyJet hefur fellt niður 218 ferðir og British Airways yfir 100 ferðir. Bilunin hefur haft áhrif á flugferðir Icelandair til og frá Lundúnum. Seinkun varð á tveimur flugferðum frá Gatwick. Önnur flugvélin er þó farin af stað. Einni flugferð frá Heathrow-flugvellinum var aflýst eftir seinkun vegna hvíldartíma áhafnar, segir Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair. Forsvarsmenn NATS-kerfisins segja að bilunin hafi verið í flugleiðsögukerfinu sem flugumferðarstjórar nota til að stjórna umferðinni. Þetta kerfi sendir jafnóðum upplýsingar um ferðir flugvéla inn í breska lofthelgi þannig að flugumferðarstjórar geti stjórnað. Síðustu fregnir herma að kerfið sé að komast í gang. Ekkert hefur verið gefið upp um orsök bilunarinnar.
2026-09-08 18:03:44

تاسو څه کوئ؟

0.03703498840332


خبرونه
Rúv.is

تازه خبرونه او سرلیکونه
Flugsamgöngur á Bretlandi og Írlandi hafa farið verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS....
خبرونه