Hægrimaðurinn Abelardo de la Espriella tók við embætti forseta Kólumbíu í kvöld. Innsetningarathöfnin var haldin í Salsa-borginni Cali en ekki höfuðborginni Bogota, líkt og hefð er fyrir. Abelardo de la Espriella hafði nauman sigur gegn vinstrimanninum Ivan Cepeda í síðari umferð forsetakosninganna í sumar, sem einkenndust af ofbeldi og hörðum deilum. De la Esprirella, sem kallar sig „Tígurinn“, hefur lýst mikilli aðdáun á stjórnarháttum Donalds Trump Bandaríkjaforseta og naut fulls stuðnings hans í kosningabaráttunni. Hann er auðugur lögfræðingur sem þykir afar litríkur. Nýi forsetinn heitir því að efla tengslin við Bandaríkin og Ísrael, berjast af hörku gegn vopnuðum sveitum eiturlyfjabaróna, byggja risastór fangelsi og draga úr umsvifum ríkisins. Mikill öryggisviðbúnaður var í Cali, þar sem skæruliðasveitir hafa iðulega gert sprengjutilræði. Forverinn, vinstrimaðurinn Gustavo Petro, var ekki viðstaddur innsetningarathöfnina og hvatti til mótmæla gegn de la Espriella í helstu borgum Kólumbíu. Samskiptin við Bandaríkin kólnuðu verulega í forsetatíð hans. Nýja forsetans gæti beðið nokkur glíma við löggjafarþingið, þar sem hann skortir meirihlutastuðning. De la Espriella sagði nýja tíma runna upp í landinu eftir sigurinn í sumar og stuðningsmenn eru vongóðir um að hann berji af hörku niður glæpagengi og uppreisnarsveitir.
2026-08-08 00:30:00