Loading

Slzii.com Search

Search (News)

Zaporizhzhia-kjarnorkuverið án rafmagns

Rúv.is icelandic business top

Zaporizhzhia-kjarnorkuverið í Úkraínu hefur verið án rafmagns í rúma viku. Neyðarrafalar eru knúnir áfram með dísilolíu svo hægt sé að kæla sex kjarnaofna kjarnorkuversins. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir að einungis séu dísilbirgðir til tíu daga í kjarnorkuverinu. Forstjóri stofnunarinnar Rafael Grossi segir að dísilolían sér gríðarlega mikilvægur orkugjafi þegar kjarnorkuverið er án rafmagns, en kjarnorkuverið hefur reglulega verið án rafmagns vegna árása norðanmegin við Dnipro-fljótið. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin reynir nú að semja um vopnahlé svo hægt sé að gera við tjón af völdum árása á orkuinnviði. Rússar tóku yfir kjarnorkuverið í mars 2022. Bæði Rússar og Úkraínumenn hafa sakað hvor aðra um árásir nærri kjarnorkuverinu við bakka Dnipro-árinnar, sem markar víglínuna milli stríðandi fylkinga.
2026-08-30 01:39:16

What are you doing?

0.045268058776855


News
Rúv.is

Latest News and Headlines
Zaporizhzhia-kjarnorkuverið í Úkraínu hefur verið án rafmagns í rúma viku. Neyðarrafalar eru knúnir áfram með dísilolíu svo hægt s...
News