Chargement

Slzii.com Recherche

Recherche (Nouvelles)

Evrópusambandið setur skilyrði sem tengjast herskyldu fyrir flóttafólk frá Úkraínu

Rúv.is icelandic world

Aðildarríki Evrópusambandsins hafa samþykkt að framlengja dvalarleyfi flóttafólks frá Úkraínu fram í mars 2028. Nýir umsækjendur munu hins vegar þurfa að sýna fram á að þeir hafi uppfyllt skilyrði um herskyldu í Úkraínu. Í tilkynningu sem ráðherraráð Evrópusambandsins birti í morgun kemur fram að þetta skilyrði sé sett með tilliti til „breytilegra þarfa í varnarmálum“, en stjórnvöld í Úkraínu hafa í langan tíma átt í erfiðleikum með að manna herdeildir. Nú er í gildi herskylda fyrir alla karlmenn á aldrinum 25 til 60 ára, og karlmenn á aldrinum 23 - 25 ára, sem eru á lista fyrir varalið, mega ekki yfirgefa Úkraínu án leyfis. Samkvæmt upplýsingum frá fastanefnd Írlands (sem nú fer með formennsku í ráðherraráðinu) er samstaða um þessa ákvörðun meðal aðildarríkjanna, en hún verður afgreidd á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna í næstu viku og síðan formlega hjá ráðherraráði ESB á næstunni. Engin sambærileg ákvæði í frumvarpi dómsmálaráðherra Ákvörðun um framlengingu á dvalarleyfi úkraínsks flóttafólks á Íslandi hefur enn ekki verið tekin. Frumvarp dómsmálaráðherra um þetta dagaði uppi á Alþingi í vor, en verður að líkindum lagt fram á næsta þingi. Engin ákvæði sem tengjast herskyldu karlmanna í Úkraínu er að finna í núverandi útgáfu af frumvarpi dómsmálaráðherra. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar lagt á það áherslu undanfarin ár, að löggjöf um útlendinga sé í samræmi við löggjöf í nágrannaríkjum Íslands. Í lok maí á þessu ári höfðu næstum 4,4 milljónir íbúa Úkraínu fengið tímabundið dvalarleyfi í Evrópu, samkvæmt upplýsingum frá Evrópusambandinu. Ríflega 1.200 þúsund þeirra eru í Þýskalandi og hátt í milljón í Póllandi. Næstum 7.000 manns frá Úkraínu hafa fengið tímabundið dvalarleyfi á Íslandi.
2026-07-15 09:30:50

Que fais-tu?

0.029929161071777


Nouvelles
Nouvelles

Dernières nouvelles et titres
Aðildarríki Evrópusambandsins hafa samþykkt að framlengja dvalarleyfi flóttafólks frá Úkraínu fram í mars 2028. Nýir umsækjendur mu...
Nouvelles