Keníski hlauparinn Emmanuel Wanyonyi setti í kvöld nýtt heimsmet í 1000 m hlaupi á Herkúles-mótinu í Mónakó. Mótið er hluti af Demantamótaröð Alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Wanyonyi kom í mark á tímanum 2:11,83 og bætti þannig fyrra met um 13 hundruðustu úr sekúndu. Metið var áður í eigu landa hans Noah Ngeny og hafði staðið allt frá 1999, eða í 27 ár. Ekki vantaði stóru nöfnin í hlaupið í kvöld en á ráslista voru m.a. Bretinn Jake Wightman, heimsmeistarinn í 1500 m hlaupi frá 2022, Djamel Sedjati, bronsverðlaunahafi í 800 m frá Ólympíuleikunum í París, og Spánverjinn Mohamed Attaoui. Wanyonyi hengdi sig á buxnastreng héranna strax í upphafi hlaups og gaf aldrei frá sér forystuna eftir að hérarnir höfðu lokið sínum störfum. Jake Wightman fylgdi honum eftir í 900 metra en átti ekki möguleika í endasprett Wanyoni. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég hleyp 1000 metra og það gleður mig mjög mikið að hafa slegið heimsmetið. Ég vil þakka hinum hlaupurunum fyrir að ýta mér upp að þolmörkunum,“ sagði Wanyoni eftir hlaupið. Öskufljótt 200 metra hlaup Þrjár hröðustu konur ársins háðu mikla baráttu í 200 metra hlaupi, þar sem Julien Alfred frá Sánkti Lúsíu kom fyrst í mark á tímanum 21,51 sekúndu. Tíminn er sá þriðji besti frá upphafi. Aðeins Florence Griffith Joyner og Shericka Jackson hafa hlaupið hraðar. Heimsmet Griffith Joyner frá 1988 er 21,34 sekúndur. Önnur í mark var Adaejah Hodge frá Bresku jómfrúareyjum á tímanum 21,76 og þriðja var Bandaríkjakonan Gabby Thomas á 21,84. Fyrir hlaupið áttu bæði Hodge og Thomas betri tíma en Alfred sem gerði sér lítið fyrir og bætti fyrra persónulega met um 0,20 sekúndur. Í heimi alþjóðlegra frjálsra íþrótta telst það óvenjulega mikil bæting í einu hlaupi. Það er þó ekki eins og hún kæmi eins og skrattinn úr sauðarleggnum því hún er bæði gull- og silfurverðlaunahafi í 100 m og 200 m hlaupi frá Ólympíuleikunum í París 2024. Russell aftur nærri heimsmeti Þá hélt Masai Russell áfram að höggva nærri heimsmeti Tobi Amusan í 100 metra grindahlaupi. Hún vann hlaupið á tímanum 12,20 sekúndum en heimsmet Amusan frá 2022 stendur í 12,12 sekúndum. Fyrr í sumar hljóp Russell á sínum besta tíma hingað til, 12,14 sekúndum. Heildarúrslit mótsins má finna hér . Næsta mót í Demantamótaröðinni verður í London þann 18. júlí.
2026-07-10 23:39:16