Róbert Aron Hostert er nafn sem allir handboltaunnendur á Íslandi þekkja enda hefur hann spilað í efstu deild á Íslandi nánast óslitið undanfarna tvo áratugi. Hann lagði nýverið skóna á hilluna eftir einstaklega farsælan feril með sínum sjötta Íslandsmeistaratitli. Róbert kom í spjall í Sportrásina á Rás 2 og gerði upp þennan glæsta meistaraflokksferil sem hófst í Safamýrinni með Fram tímabilið 2008/2009. Róbert er uppalinn Frammari en hefur þó orðið Íslandsmeistari með þremur mismunandi félögum á Íslandi en auk Fram eru það ÍBV og Valur. Hvort er það Fram eða Valur? Aðspurður að því hvort það slái ennþá Fram-hjarta í honum eftir öll þessi vistaskipti svaraði hann: „Já, ég er auðvitað uppalinn, byggði upp grunninn þarna í Fram. Auðvitað er maður blár, maður kannski blandast svolítið eftir allan þennan tíma í Val. Eigum við ekki að segja að þetta sé 50/50.” Sá efnilegasti fór til Eyja - góður samningur Eftir Íslandsmeistaratitil með Fram tímabilið 2012/2013 ákvað Róbert, þá efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins, að söðla um og ganga til liðs ÍBV sem þá var nýkomið upp í efstu deild. Eyjamenn voru ekki þeir einu sem voru á eftir Róberti og kom sú ákvörðun hans að ganga til liðs Eyjamenn mörgum á óvart. „Svo hefur ÍBV bara samband og ég væri nú að ljúga því ef að það væri ekki fyrir samninginn sem ég fékk þarna í samanburði við hvað Fram og önnur lið gátu boðið mér, það spilaði stóran þátt í þessari ákvörðun að fara til Eyja,“ sagði Róbert þegar hann var spurður út í aðdraganda þess að hann ákvað að ganga til liðs ÍBV en þá var hann með samning á borðinu frá bæði Fram og Hannover-Burgdorf í Þýskalandi. Mors-Thy kallaði Eftir eitt tímabil í Vestmannaeyjum og Íslandsmeistaratitil eftir einstaklega eftirminnilegt úrslitaeinvígi gegn Haukum sem vannst í oddaleik á Ásvöllum 28-29 ákvað Róbert að taka skrefið í atvinnumennskuna og ganga til liðs við danska félagið Mors-Thy. „Þjálfarinn hjá Mors var góður í kjaftinum og náði mér á sitt band þar, en það kom svo annað á daginn þegar þetta byrjaði allt saman,“ segir Róbert um þá ákvörðun að ganga til liðs við Mors-Thy þegar fleiri lið voru í viðræðum við hann. Niðursveifla í Danmörku og upprisa í Eyjum Eftir tvö ár í Danmörku sem voru erfið að sögn Róberts, tíma sem hann lýsti sem ákveðinni niðursveiflu á sínum ferli, ákvað hann að ganga aftur til liðs ÍBV þar sem hann eyddi næstu tveimur tímabilum. Þarna voru ÍBV búnir að safna í stjörnulið en auk þess að ná í Róbert fyrir tímabilið höfðu þeir sótt Sigurberg Sveinsson, Kára Kristján Kristjánsson og Aron Rafn Eðvarðsson. Væntingarnar voru því miklar fyrir Eyjamenn, og það mætti segja að þeir hafi ekki staðist þær fyrra tímabilið „Það var nú ömurlegt að vera í Eyjum þá, held að Addi P. hafi gefið okkur eina og hálfa viku í sumarfrí og svo bara æft tvisvar í dag,“ sagði Róbert um hvernig stemmingin var í Eyjum eftir að hafa dottið út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á móti verðandi Íslandsmeisturum Vals. Því var þó öllu kippt í liðinn tímabilið eftir þegar að ÍBV vann allt sem í boði var. Titlasveifla í Val Þarna lá svo leiðin aftur upp á land hjá Róberti þegar hann gekk til liðs við Val fyrir tímabilið 2018/2019 og spilaði hann restina af sínum ferli þar. Á Hlíðarenda urðu Róbert og Valsmenn Íslandsmeistarar, deildarmeistarar og bikarmeistarar í þrígang og bættu svo við Evrópumeistaratitli í Grikklandi 2024 sem kórónaði tveggja ára Evrópuævintýri Valsmanna sem seint mun gleymast. Viðtalið í heild sinni er að finna hérna fyrir neðan. Viðtali hefst 01:14:00 Róbert Aron Hostert vann sjö Íslandsmeistaratitla í handbolta á afar færsælum ferli. En hvort er hann meira Framari eða Valsari? Af hverju var ömurlegt að vera í Eyjum eitt sumarið?
2026-07-10 23:58:46