Loading

Slzii.com Sykje

Sykje (Nijs)

Líbanar byrjaðir að snúa aftur heim á leið

Líbanar byrjaðir að snúa aftur heim á leið
Rúv.is icelandic politics top

Yfir 640 þúsund Líbanar sem þurftu að flýja heimili sín vegna stríðsátaka hafa snúið aftur heim á leið samkvæmt Alþjóðafólksflutningastofnuninni (IOM). Enn er þó ríflega hálf milljón manna enn á vergangi í Líbanon. Tugir borga og þorpa í suður Líbanon urðu fyrir miklu tjóni og eyðileggingu í árásum Ísraela og því margir sem eiga þess ekki kost að fara aftur heim til sín. Vopnahlé hefur verið í gildi síðan 21. júní. Ísraelsk stjórnvöld ætla að hafa hersveitir áfram í Líbanon á svæði sem nær tíu kílómetra inn í landið, þrátt fyrir vopnahlé. Ísraelsk og líbönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um að stíga skref í átt til varanlegs friðar, meðal annars með afvopnun Hezbollah-samtakanna, brotthvarfi Ísraelshers frá Líbanon og viðveru líbanska hersins í suður Líbanon. Hezbollah hafna þessu samkomulagi. Líbönsk yfirvöld segja að yfir 4.300 manns hafi verið drepnir í átökunum milli Ísraelshers og Hezbollah sem hófust 2. mars. Rúmlega ein milljón manns þurfti að flýja heimili sín vegna árása, flestir í suðurhluta Líbanon og í suðurhverfum höfuðborgarinnar Beirút.
2026-07-04 04:42:38

Wat dochst do?

0.029367923736572


Nijs
Nijs

Lêste nijs en Headlines
Yfir 640 þúsund Líbanar sem þurftu að flýja heimili sín vegna stríðsátaka hafa snúið aftur heim á leið samkvæmt Alþjóðafólksflutni...
Nijs