Keppni hélt áfram á Evrópumótinu í sundi í París í Frakklandi í kvöld þegar keppt var til úrslita í nokkrum greinum. Þar stóð upp úr stórglæsilegt heimsmet Þjóðverjans Johannes Liebmann í 1500 metra skriðsundi. Liebmann, sem er aðeins 19 ára, varð fyrstur í sögunni til að synda vegalengdina á innan við 14 mínútum og 30 sekúndum. Liebmann kom í mark á 14:26,79 mínútum og bætti heimsmet Bandaríkjamannsins Bobby Finke um 3,88 sekúndur. Finke setti fyrra metið, 14:30,67, þegar hann varð Ólympíumeistari í París fyrir tveimur árum. Ingi Þór Ágústsson fór á kostum í lýsingunni á heimsmetinu í beinni útsendingu á RÚV. Þjóðverjinn Johannes Liebmann setti stórkostlegt heimsmet í 1500 metra skriðsundi á Evrópumótinu í París í kvöld. Liebmann, sem er aðeins 19 ára, varð fyrstur í sögunni til að synda vegalengdina á innan við 14 mínútum og 30 sekúndum. Árangur Liebmann markar tímamót í greininni. Um 26 ár eru liðin frá því að 15 mínútna múrinn var fyrst rofinn í 1500 metra skriðsundi karla og nú hefur 14:30 mínútna múrinn fallið í fyrsta sinn. Liebmann hafði mikla yfirburði í úrslitasundinu. Ungverjinn Zalan Sarkany varð annar, rúmum tólf sekúndum á eftir Þjóðverjanum, og Oliver Klemet frá Þýskalandi tók bronsið. Þetta var jafnframt annað Evrópugull Liebmann á mótinu. Hann varð Evrópumeistari í 800 metra skriðsundi fyrr í vikunni og setti þá Evrópumet. Moluh bætti eigið Evrópumet Fleiri met féllu í París í kvöld. Hin franska Mary-Ambre Moluh varð Evrópumeistari í 100 metra baksundi á 57,94 sekúndum og bætti eigið Evrópumet um fimm hundruðustu úr sekúndu. Moluh hafði sett fyrra metið, 57,99 sekúndur, á fyrsta legg frönsku sveitarinnar í 4x100 metra fjórsundi blandaðra sveita fyrr í vikunni. Marrit Steenbergen frá Hollandi varð önnur á 58,46 og Pauline Mahieu frá Frakklandi þriðja á 58,77. Heimamenn fengu einnig mikið tilefni til að fagna þegar Léon Marchand varð Evrópumeistari í 200 metra flugsundi. Fjórfaldi Ólympíumeistarinn frá París 2024 vann örugglega á 1:51,52 mínútum, aðeins 31 hundraðshluta frá Ólympíumetinu sem hann setti í sömu grein fyrir tveimur árum. Marchand hefur glímt við meiðsli í aðdraganda mótsins og þetta var fyrsti Evrópumeistaratitill hans á ferlinum. Evrópumótinu í sundi lýkur á morgun og verður bein útsending frá lokakeppnisdeginum á RÚV kl. 16:25.
2026-08-15 21:32:44