Eins og áður hefur verið greint frá setti Baldvin Þór Magnússon glæsilegt Íslandsmet í 10.000 metra hlaupi á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í kvöld. Svíinn Andreas Almgren stal þó senunni í hlaupinu með yfirburðasigri og nýju mótsmeti. Almgren var í sérflokki í 10.000 metra hlaupinu og varð Evrópumeistari á 27:23,44 mínútum. Svíinn sló þar með elsta mótsmet EM, 27:30,99, sem Finninn Martti Vainio setti árið 1978. Dominic Lokinyomo Lobalu frá Sviss fékk silfur og heimsmeistarinn Jimmy Gressier frá Frakklandi brons. Weber yfir 90 metra Þjóðverjinn Julian Weber átti stórkast í spjótkasti karla og varð Evrópumeistari með 90,40 metra kasti, sem jafnframt var nýtt mótsmet. Sindri Hrafn Guðmundsson var meðal keppenda í úrslitunum. Hann kastaði lengst 75,36 metra í fyrstu þremur umferðunum og varð tíundi. Þar með komst hann ekki í hóp átta efstu sem fengu þrjú köst til viðbótar. O'Connor með írskt met Kate O'Connor frá Írlandi varð Evrópumeistari í sjöþraut eftir tveggja daga keppni. Hún lauk keppni með 6.751 stig sem er nýtt írskt met, og bætti þar með enn einum stórum titli í safnið eftir að hafa meðal annars unnið silfur á HM. Í 1500 metra hlaupi karla varð Hollendingurinn Niels Laros Nillessen Evrópumeistari en heimamaðurinn Jake Wightman, fyrrverandi heimsmeistari, varð að sætta sig við sjötta sætið. Þriðji Evrópumeistaratitillinn í röð Úkraínska stórstjarnan Yaroslava Mahuchikh hélt áfram yfirburðum sínum í hástökki kvenna og tryggði sér þriðja Evrópumeistaratitilinn í röð. Maria Żodzik frá Póllandi varð önnur og Marija Vuković frá Svartfjallalandi þriðja. Stór uppskera hjá Bretum Bretar enduðu kvöldið síðan með mikilli uppskeru í 4x100 metra boðhlaupunum . Heimamenn unnu bæði karla- og kvennakeppnina. Amy Hunt var í sigursveit bresku kvennanna og vann þar með sitt þriðja gull á mótinu , eftir sigra í 100 og 200 metra hlaupum. Evrópumótinu lýkur á morgun sunnudag þegar síðustu Evrópumeistararnir verða krýndir í Birmingham. Hlynur Andrésson keppir í maraþoni kl. 7:30 í fyrramálið í beinni útsendingu á RÚV 2 . Bein útsending frá kvöldkeppninni hefst svo á RÚV 2 klukkan 18:30.
2026-08-15 21:49:15