Hjóleiðamaðurinn Finlay Tarling lést eftir alvarlegt slys í áttundu dagleið hjólreiðakeppninnar Volta a Portugal. Tarling var 19 ára gamall. Tarling keppti fyrir NSN sem tilkynnti um andlátið og sendi aðstandendum samúðarkveðjur. „Það er okkur þungbært að greina frá því að Finlay Tarling lést í dag í Volta a Portugal. Fin var afar kær meðlimur liðsins okkar en umfram allt var hann sonur, bróðir og vinur svo margra. Hans verður sárt saknað. Við sendum foreldrum Fins, Michael og Dawn, bróður hans Josh og öllum þeim sem voru svo lánsamir að kalla Fin vin sinn okkar dýpstu samúðarkveðjur.“ Leiðin er 166,8 kílómetra löng og 23 kílómetrar voru eftir þegar slysið átti sér stað. Þá var keppnin stöðvuð og leið dagsins var ekki kláruð. Alls eru 10 dagleiðir hjólaðar á mótinu og því á að ljúka á sunnudag. Tarling hafði keppt fyrir Bretland og varð meðal annars þriðji í tímatöku 23 ára og yngri á breska meistaramótinu í júní. Eldri bróðir hans, Josh Tarling, er einnig efnilegur hjólreiðakappi.
2026-08-14 19:52:48