Loading

Slzii.com Search

Search (News)

Héraðssaksóknari fær að rannsaka Jón Óttar

Rúv.is icelandic politics top

Landsréttur telur Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara og starfsmenn embættisins hæfa til að rannsaka meint mútubrot og peningaþvætti Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, meðan hann starfaði fyrir Samherja. Landsréttur staðfesti 31. júlí úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrr í sama mánuði. Þar var kröfu Jóns Óttars um að meðferð héraðssaksóknara á þætti hans í svokölluðu Samherjamáli yrði felld niður vegna meints vanhæfis embættisins hafnað. Níu fyrrverandi og núverandi stjórnendur eða starfsmenn Samherja eru með réttarstöðu sakbornings. Einn þeirra er Jón Óttar. Rannsókninni er lokið en héraðssaksóknari hefur ekki gefið út ákæru. Samherjamálið og meint brot hjá sérstökum saksóknara ótengd Jón Óttar starfaði hjá embætti sérstaks saksóknara árin 2009–2011 og sætti rannsókn í tveimur málum vegna meintra brota í starfi. Embætti héraðssaksóknara var áður embætti sérstaks saksóknara. Jón Óttar hélt því fram í kæru sinni að verulegur vafi léki á því að embætti héraðssaksóknara gæti rannsakað meint brot hans vegna starfa hans fyrir Samherja vegna tengslanna við embætti sérstaks saksóknara. Þetta féllst Landsréttur hins vegar ekki á. Í úrskurði Landsréttar er bent á að mikið þurfi að koma til svo að dómstólar úrskurði að yfirstandandi rannsókn sé ólögmæt og henni skuli hætt. „Grunur um brot varnaraðila í opinberu starfi hjá sérstökum saksóknara, forvera embættis héraðssaksóknara, getur að réttu lagi ekki leitt til vanhæfis sóknaraðila við rannsókn og saksókn annarra og óskyldra mála á hendur varnaraðila.“ Þá vildi Jón Óttar meina að draga mætti vanhæfi héraðssaksóknara í efa vegna þess að hann tjáði sig opinberlega um meint brot hans í tengslum við svokallað PPP-mál síðasta vor. Landsréttur úrskurðaði að með hliðsjón af stöðu héraðssaksóknara væri eðlilegt að hann tjáði sig um meint brot Jóns Óttars. Ekki var fallist á að þau leiddu til vanhæfis héraðssaksóknara til að rannsaka önnur mál á hendur honum. „Voru þau ummæli sem höfð voru eftir honum í fjölmiðlum, með hliðsjón af þeim atvikum sem voru til umfjöllunar, hófstillt og í samræmi við tilefnið,“ segir í úrskurðinum.
2026-08-14 19:56:29

What are you doing?

0.020006895065308


News
Rúv.is

Latest News and Headlines
Landsréttur telur Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara og starfsmenn embættisins hæfa til að rannsaka meint mútubrot og peningaþvætti Jo...
News