Þúsundir tonna af íslenskum perlusandi flutt út árlega
icelandic top business
Síðustu tuttugu ár hefur sandnáman við Stokksnes verið gjöful. Á hverju ári eru hátt í fjörutíu þúsund tonn af möl tekin úr um átta kílómetra langri fjörunni frá Stokksnesi og í átt að Hornafjarðarósi. Helmingur er notaður innanlands, en hátt í tuttugu þúsund tonnum er siglt suður á bóginn. Ómar Antonsson, bóndi á Horni, segir marga hafa furðað sig á því hvaða staðir vilji ólmir fá íslenskan perlusand – eins og eyðimerkurríki í Bandaríkjunum. Sandurinn sé vinsæll í sundlaugar í Norður-Ameríku, mikið notaður í gangstéttir og innkeyrslur annars staðar og sums staðar í Evrópu prýði hann garða til skrauts. Höfnin við Horn var byggð sérstaklega undir útflutninginn. Magnið sem er tekið úr fjörunni hefur um það bil fimmfaldast á undanförnum tveimur áratugum. 2026-06-30 23:21:52
Latest News and Headlines
Síðustu tuttugu ár hefur sandnáman við Stokksnes verið gjöful. Á hverju ári eru hátt í fjörutíu þúsund tonn af möl tekin úr um ...
News