Frakkland er komið í 16-liða úrslit eftir öruggan 3-0 sigur á Svíþjóð í 32-liða úrslitum á HM í kvöld. Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, er þá sá þjálfari sem hefur unnið flesta leiki á heimsmeistaramóti. Deschamps hefur þjálfað liðið frá 2012 en hann mun hætta eftir mótið. Hann hefur stýrt liðinu á fjórum heimsmeistaramótum. Hann stýrði liðinu til sigurs árið 2018 en liðið tapaði í úrslitum fjórum árum síðar. 2026-06-30 23:25:00