Carregando

Slzii.com Procurar

Procurar (Notícias)

Svíar samþykkja sakhæfi 14 ára barna

Rúv.is icelandic crime politics top

Hægt verður að dæma 14 ára börn í fangelsi fyrir sérstaklega alvarleg brot. Sænska þingið samþykkti þetta í dag með 281 atkvæði gegn 66. Lágmarksaldurinn var áður 16 ár. Ríkisstjórnin vildi upphaflega að sakhæfisaldurinn væri lækkaður niður í 13 ár en hækkaði mörkin eftir að í ljós kom að slík tillaga hefði ekki þingmeirihluta. Ný lög, sem taka gildi 10. september, gera ráð fyrir að hægt verði að dæma 14 ára börn í fangelsi fyrir brot á borð við morð, nauðgun og alvarleg vopnalagabrot. Þó að aldurstakmörkin hafi verið hækkuð frá upphaflegri tillögu hefur hún sætt mikilli gagnrýni, meðal annars frá yfirvöldum, samtökum sem berjast fyrir réttindum barna og sérfræðingum. Ríkisstjórnin hefur hins vegar sagt að þetta sé nauðsynlegt til þess að tryggja réttlæti fyrir þolendur glæpa og vernda samfélagið fyrir hættulegu fólki. Kveikjan að þessu er að glæpagengi hafa í auknum mæli fengið börn til að fremja alvarlega glæpi þar sem þau eru ekki sakhæf samkvæmt lögum og er þar af leiðandi ekki refsað. Þingið samþykkti líka að draga úr refsilækkun vegna ungs aldurs. Það þýðir að hægt verður að dæma börn yngri en 18 ára í allt að 18 ára fangelsi. Þessi breyting var umdeildari í þinginu því hún var samþykkt með aðeins fimm atkvæða mun. Stjórnmálaskýrendur segja þessa niðurstöðu hafa verið mikilvægt veganesti fyrir hægri stjórnina í Svíþjóð fyrir komandi þingkosningar, sem fara fram 13. september.
2026-08-13 18:00:37

O que você está fazendo?

0.019531011581421


Notícias
Notícias

Últimas notícias e manchetes
Hægt verður að dæma 14 ára börn í fangelsi fyrir sérstaklega alvarleg brot. Sænska þingið samþykkti þetta í dag með 281 atkvæði gegn 66...
Notícias