Cargando

Slzii.com Buscar

Buscar (Noticias)

Tófan gæti grætt á almyrkvanum

Rúv.is icelandic business top environment

Almyrkvinn sem verður á sólu síðdegis varir lengst á landi við Látrabjarg. Látrabjarg er jafnframt eitt stærsta fuglabjarg í álfunni, en hvað gera fuglarnir í sólmyrkva? „Ég geri ráð fyrir því að það gerist bara það sama og gerðist í nótt, það bara þagnaði allt þegar kom myrkur,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði. Hann segist hafa lesið að fuglar og dýr þagni í sólmyrkvum þó að hann hafi aldrei upplifað það sjálfur. „Krían er að æfa ungana núna fyrir langflugið til Vaðlahafs á Suðurskautinu. Ég geri bara ráð fyrir því að þær fái sér hvíld. Það kemur myrkur og þær misskilji ástandið og haldi að það sé komin nótt.” Á Snæfellsnesi og á Reykjanesskaga gerir Gísli ráð fyrir að fuglarnir bregðist eins við þótt það sé ekki eins mikið af svartfugli þar eins og í kringum Látrabjarg. Þegar fólk kemur út á Látrabjarg, hvað getur það átt von á því að sjá? „Sér það nokkuð í myrkrinu?“ svarar Gísli glettinn. „Ég held að það sjái bara fuglalíf og annað. Það hljóðnar yfir því og fuglinn bíður eins og hann sé að bíða af sér nóttina og verður spakari og rólegri. Ef það er eitthvað dýr sem ætlar að græða á þessu þá held ég að tófan gæti grætt á þessu. Hún á það til að veiða á nóttunni og þegar fuglinn er spakur.“ Prófessor emeritus í líffræði gerir ráð fyrir að fuglarnir á Látrabjargi róist og þagni meðan á sólmyrkvanum stendur. Hann segir tófuna geta grætt á sólmyrkvanum þar sem hún eigi það til að veiða á nóttunni.
2026-08-12 16:19:56

¿Qué estás haciendo?

0.023146152496338


Noticias
Rúv.is

Últimas noticias y titulares
Almyrkvinn sem verður á sólu síðdegis varir lengst á landi við Látrabjarg. Látrabjarg er jafnframt eitt stærsta fuglabjarg í álfunni...
Noticias